EIGNALÓÐ MEÐ HEITU VATNI - BÚIÐ AÐ GREIÐA INNTAKSGJÖLD.
Borg fasteignasala kynnir: Frístundalóð á skipulögðu sumarhúsasvæði í landi Hæðarenda í Grímsnes-og Grafningshreppi.
Lóðin er 5.670 fm eignarlóð, með fallegu útsýni.Heitt vatn, kalt vatn og rafmagn er á lóðarmörkum.
Lokað er inn á svæðið með símahliði. Sumarhúsafélag er á svæðinu.
Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir.
Selfoss er aðeins í ca. 18 km fjarlægð og því stutt í alla þjónustu.
SMELLTU HÉR til að sjá staðsetningu á ja.is
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Fannar í síma 897-5930 eða [email protected]