Eign í skiptum fyrir stærri eign.
Borg fasteignasala kynnir til sölu fallega 96 fermetra 4ja herbergja íbúð á 3. hæð efstu við Markland í Reykjavík. Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi, stofu og eldhús. Sérgeymsla er í sameign og sameiginlegt þvottahús. Fallegt útsýni er úr eigninni til suðurs og stutt í verslun og þjónustu. Eignin fæst eingöngu í skiptum fyrir stærri eign í pótsnúmerum 101 eða 108.Nánari lýsing: Komið er inn á parketlagt hol með fataskápum. Stofa er björt með parketi og útsýni til suðurs. Úr stofu er gengið út á rúmgóðar svalir. Svefnherbergin eru þrjú,parketlögð og tvö fataskápum. Eldhús er parketlagt með hvítlakkaðri innréttingu, steinborðplötu og borðkrók. Baðherbergi er flísalagt með sturtuklefa, upphengdu salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Fallegt útsýni er úr eigninni til suðurs.
Nánari upplýsingar veitir Brandur Gunnarsson löggiltur fasteignasali-löggiltur leigumiðlari í síma 897-1401 [email protected] hjá BORG fasteignasölu.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði