Borg fasteignasala kynnir til sölu endabil í atvinnuhúsnæði á Vagnhöfða í Reykjavík. Húsnæði skiptist í 125,2 fermetra á jarðhæð með tveimur innkeyrsluhurðum ca 4m með möguleika á gegnum keyrslu þar sem húsnæðið er með aðkomu bæði frá Dvergshöfða og Vagnhöfða. Á efri hæðinni eru skrifstofur, salerni og kaffiaðstaða/eldhús. . Húsnæðið var mikið endurnýjað í kringum 2017. Húsnæðið er á tveimur fastanúmerum og er upphaflega hugsað sem tvö bil merkt 101 og 114.
Gott malbikað útisvæði er báðum megin við húsnæðið. Nánari upplýsingar veitir Brandur Gunnarsson löggiltur fasteignasali-löggiltur leigumiðlari í síma 897-1401 [email protected] hjá BORG fasteignasölu.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði