Verið er að hlaða..
850 Hella

Kjarralda 6B

  • Raðhús/Raðhús á einni hæð
  • 130 m2
  • 4
64.900.000 Kr.
img
img
img
img
img
img
img
img
img

Borg fasteignasala kynnir: Kjarralda 6B er raðhúsíbúð í nýju raðhús á Hellu í Rangárþingi ytra. Íbúðin er fjögurra herbergja með bílskúr, samtals 130,0 m2 í nýju raðhúsi sem er í byggingu og verður afhent í júní 2023. Íbúðin er afhent tilbúin til innréttinga á byggingarstigi 3 skv. ÍST 51:2021, lóð grófjöfnuð og húsið tilbúið að utan. Glæsilegt fjögurra herbergja raðhúsíbúð með bílskúr.
 
Raðhúsíbúðirnar að Kjarröldu 6 eru þrjár, merktar 6A, 6B og 6C.

Fjögurra herbergja með bílskúr og afhendast tilbúnar til innréttinga, lóð grófjöfnuð og húsið tilbúið að utan. Afhending við kaupsamning.
Raðhúsíbúðir með bílskúr. Glæsilegar, bjartar og rúmgóðar á einni hæð og afhendast tilbúnar til innréttingar á byggingarstigi 3 skv. ÍST 51:2021 um byggingarstig húsa. Kaupandi greiðir skipulagsgjald (0,3% af endanlegu brunabótamati) þegar það verður lagt á.
 
Glæsilegar íbúðir í nýju raðhúsi, verönd í suður og útsýni til austurs yfir flugvöllinn, til fjalla og jökla.

Sjá nánar á kynningarsíðu https://www.straumarhus.is/
Allar nánari upplýsingar:  Gunnlaugur Þráinsson, löggiltur fasteignasali í síma 844 6447 og [email protected]
og María Mjöll í lögg.námi sími 866-3934 netfang [email protected]


BORG FASTEIGNASALA ehf.
Síðumúla 23
108 Reykjavík

 
Nánari upplýsingar:
Kjarralda 6A, 6B, 6C – Afhending við kaupsamning.
Þrjár raðhúsaíbúðir allar fjögurra herbergja með bílskúr og 130 fermetrar að stærð. Afhendast tilbúnar til innréttinga, lóð grófjöfnuð og húsið tilbúið að utan.
Íbúðirnar eru glæsilegar, bjartar og rúmgóðar á einni hæð og afhendast tilbúnar til innréttingar á byggingarstigi 3 skv. ÍST 51:2021 um byggingarstig húsa.
 
Skilalýsing íbúða:
Glæsilegar íbúðir í raðhúsi með garð til suðurs. Íbúðirnar eru um 130 m2, þar af er 22,3 m2 bílskúr. Um er að ræða nýbyggingu og afhendast íbúðirnar tilbúnar til innréttingar, þ.e. á byggingarstigi 3 skv. ÍST51:2021.

Húsið skiptist í eftirfarandi íbúðir samkvæmt teikningu: Íbúð 6A, 6B og 6C –  hver íbúð er 130 m2:
  • Anddyri
  • 3 rúmgóð svefnherbergi
  • Eldhús og stofu/borðstofu í rúmgóðu opnu rými
  • Baðherbergi
  • Þvottahús
  • Bílskúr
Húsið er byggt úr timbri en sökklar og gólfplata er steypt.
Útveggir eru klæddir að utan með bárujárni og standandi lerki í innskotum við aðalinngang.
Bárujárn er á þaki og þakkantur er klæddur furupanil.
Gluggar og hurðir eru úr timbri klæddir með áli.
Gólfhitalagnir eru steyptar í gólfplötu. Gólfhitakerfi eru fullgert og frágengið án hitastýringar.
Húsið er viðhaldslétt að utan.
Lóð verður grófjöfnuð.
Sorpgeymsla og sólpallur fylgir hverri íbúð skv. aðaluppdráttum.
 
Frágangur utanhúss
Útveggir
  • Útveggir eru klæddir að utan með grárri liggjandi bárujárnsklæðningu og standandi lerki í innskotum við aðalinngang.
Þak
  • Þak er klætt með hvítu bárujárni.
  • Þakkantur er klæddur með hvítum furupanil.
  • Útiljós er í þakkanti yfir aðalinngangi.
  • Þakrennur og niðurföll eru utan á liggjandi.
Gluggar og útihurðir
  • Gluggar og hurðir eru úr timbri og klæddir með áli (ál-tré), hvítir að innan og utan.
Lóð
  • Lóð er grófjöfnuð og er hæfilega gróf möl í bílaplani.
  • Sorpgeymsla fyrir þrjár tunnur er fyrir hverja íbúð.
  • Þrjú ídráttarrör eru út í garð, t.d fyrir pott og rafmagn.
  • Lagt er ídráttarrör fyrir rafbílahleðslu frá töflu og út fyrir sökkul framan við hús.
  • Sólpallur er við hverja íbúð og skjólveggur á milli íbúða á baklóð.
Frágangur innanhúss:
Gólf
  • Gólf er afrétt, rykbundið og tilbúið til lagningar á gólfefni, þ.e. parket eða flísar, án endanlegrar spörtlunar sé hennar þörf.
Veggir
  • Útveggir, innveggir og allir kantar með gluggum er klæddir gifsplötum
  • Baðherbergi og bílskúr er klætt votrúms gifsplötum.
  • Eldvarnargifs er þar sem þess er þörf sbr brunakröfur
  • Allir veggir eru spartlaðir og grunnaðir, kaupandi blettspartlar fyrir málun ef þörf er á.
Loft
  • Loft í íbúð eru klædd loftaþiljum. Loft í bílskúr er klætt gifsplötum spörtluð og grunnuð, kaupandi blettspartlar fyrir málun ef þörf er á.

Lagnir
  • Fráveitulagnir innanhús eru fullgerðar og frágengnar frá niðurföllum og tengipunktum þrifatækja, en þar eru leiðsluendar með lokum.
  • Neysluvatnslagnir er tengdar við stofninntak, fullgerðar og frágengnar að tengipunktum tækja.
  • Gólfhitalagnir eru steyptar í gólfplötu. Gólfhitakerfi eru fullgert og frágengið án hitastýringar.
Rafkefi
  • Heimtaug rafmagns er tengd og frágengin.
  • Pípur fyrir raf- og boðlagnir milli töflu og tengidósa eru fullgerðar.
  • Vinnuljós eru tengd í hverju herbergi.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald (0,3% af endanlegu brunabótamati) þegar það verður lagt á.
  
Sjá á kynningarsíðu: https://www.straumarhus.is/
Upplýsingar:
Gunnlaugur Þráinsson, löggiltur fasteignasali, s.844 6447 / [email protected]

BORG FASTEIGNASALA ehf.
Síðumúla 23
108 Reykjavík




 
 
 

Sækja söluyfirlit

Söluyfirlit

Skráðu netfangið þitt hér og við sendum þér söluyfirlit eignarinnar um hæl.

Leitaður að heimili

Hvað getum við gert?

Við finnum draumaheimilið þitt

Skráðu þig á kaupendalista. Í sameiningu finnum við réttu eignina.

Kaupendalisti

Við seljum eignina þína

Skráðu eignina hjá okkur. Við verðum þér innan handar í söluferlinu.

Eignarskráning

Við aðstoðum þig hvert fótmál

Hvort sem þú ert að kaupa eða selja leggjum við okkur fram um að veita góða, faglega og persónulega þjónustu.

Um Borg